Rjúpa á þaki

Rjúpa á þaki

Kaupa Í körfu

TALNING Náttúrufræðistofnunar Íslands á rjúpu nú í vor bendir til að uppsveifluskeið sem hófst á austanverðu landinu á síðasta ári nái nú til alls landsins. Eftir tveggja ára stofnvöxt eru rjúpur að verða algeng sjón í varplöndum um Norður- og Austurland. Meðalaukning milli ára 2008 og 2009 var um 25%. Venjulega hafa fyrri uppsveifluskeið varað í fjögur til fimm ár. Miðað við þær forsendur má búast við að stofninn nái hámarki á árunum 2011 og 2012. Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins mun liggja fyrir í ágúst. MYNDATEXTI Uppsveifla Rjúpa á þaki eyðibýlisins Barma í Reykhólasveit.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar