Garðhúsgögn

Heiðar Kristjánsson

Garðhúsgögn

Kaupa Í körfu

Sumarið vill oft verða ansi stutt á Íslandi, svo stutt raunar að einstaka sumur sést einungis til sólar nokkra daga yfir sumarið. Veðráttan á Íslandi hefur þó breyst talsvert og sólardagarnir sem Íslendingar fá að njóta á hverju sumri verða sífellt fleiri. Þegar veðrið er gott er fátt yndislegra en að sitja út í garði eða á palli, með góða bók í hönd eða jafnvel í góðum félagsskap. Svo það sé mögulegt á besta máta er þægilegt að hafa einhvers konar garðhúsgögn í garðinum þó teppið góða á túninu standi vissulega fyrir sínu. Úrvalið af fallegum garðhúsgögnum er gríðarlega mikið og því bara spurning um hvað heillar hvern og einn. Hér eru nokkur sýnishorn. MYNDATEXTI Stílhrein og falleg Einföld og stílhrein húsgögn úr tekki og stáli frá Grillbúðinni, Kópavogi. Stóll með örmum og fimm stillingum á 32.900 krónur, klappstóll á 22.900 krónur og borð á 49.900 krónur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar