Fjölskyldan í Borgarefnalauginni

Heiðar Kristjánsson

Fjölskyldan í Borgarefnalauginni

Kaupa Í körfu

Minni hroki en í góðærinu Munurinn er í sjálfu sér ekki mikill, því við vinnum alveg jafn mikið og áður, segir Anna María Halldórsdóttir í Borgarefnalauginni í Borgartúni 22. Undir þetta tekur eiginmaður hennar, Friðbert Hafþórsson. Við höfum alltaf haft svo mikið að gera að við viljum ekkert meira. Við höfum aldrei verið svo gráðug heldur lagt áherslu að bjóða ódýra þjónustu, segir hann brosandi. Og þau tala af reynslu. Þau hafa rekið efnalaugina í 25 ár, þar af síðustu 11 árin í Borgartúninu. MYNDATEXTI Fjölskyldufyrirtæki Dætur Önnu Maríu og Friðberts, þær María Ósk (t.v) og Birta Ósk eru iðulega með foreldrum sínum í vinnunni. Óskar Bertel bróðir þeirra var fjarri við myndatökuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar