Frjálsíþróttamót á Laugardalsvelli

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Frjálsíþróttamót á Laugardalsvelli

Kaupa Í körfu

ÉG er í mjög góðu formi og þetta er bara spurning um að ná að sýna það í þrautinni. Það er meiri kúnst en margur heldur, sagði frjálsíþróttakonan efnilega Helga Margrét Þorsteinsdóttir við Morgunblaðið í gær. Hún er á meðal keppenda á Norðurlandameistaramóti unglinga í fjölþrautum sem fram fer á Kópavogsvelli um helgina. Þrátt fyrir að vera á átjánda ári setti Helga Margrét Íslandsmet í sjöþraut kvenna fyrir tæpu ári og miðað við gengi hennar á Smáþjóðaleikunum á Kýpur fyrir skömmu gæti það fallið nú.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar