Stjórnarmyndunarviðræður

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Stjórnarmyndunarviðræður

Kaupa Í körfu

Nýtt verk, sömu leikarar NOKKRIR þeirra, sem leika stærstu hlutverkin við myndun nýrrar ríkisstjórnar, eiga það sameiginlegt að hafa setið saman í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar frá 1988 til 1991. Í þeirri ríkisstjórn áttu sæti meðal annarra Jóhanna Sigurðardóttir, verðandi forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, verðandi fjármálaráðherra, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem veitti stjórnarmyndunarumboðið nú. Jóhanna var félagsmálaráðherra, Steingrímur landbúnaðar- og samgönguráðherra og Ólafur Ragnar fjármálaráðherra. Nýir tímar Stjórnarmyndunarviðræður í Alþingishúsinu í gærmorgun. Steingrímur J. Sigfússon er í forsvari fyrir Vinstri græna og Jóhanna Sigurðardóttir í forsvari fyrir Samfylkinguna

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar