Gjörningur á Laugavegi

Gjörningur á Laugavegi

Kaupa Í körfu

LISTAGYÐJAN skaut upp kolli víða í höfuðborginni í gær og beitti hún ýmsum brögðum til að fá vegfarendur til að líta upp úr hversdagsleikanum og staldra við. Hið svokallaða Ramadansfjelag lagði undir sig verslunina Rokk og rósir, en þessi vegfarandi lét þó óvænt stefnumót sitt við listagyðjuna í líki dansandi konu í hvítum kjól í búðarglugga, ekki raska ró sinni og hélt ótrauður áfram för sinni um götur borgarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar