Háskóli unga fólksins

Háskóli unga fólksins

Kaupa Í körfu

Leyndardómar læknisfræðinnar, stjörnuskoðun og sjónvarpsþáttagerð er aðeins brot af því sem um 300 nemar í Háskóla unga fólksins fengu að kynnast nú í vikunni. Í eina viku á hverju ári fær Háskóli Íslands annan svip, stressaðir háskólanemar á þrítugsaldri hafa flögrað út í sumarið en í stað þeirra koma fróðleiksfús ungmenni í tugatali. Reyndar var slegið aðsóknarmet þetta sumarið enda mörg og fjölbreytt námskeið í boði. Á milli námskeiða þar sem fróðleiksfýsninni hefur verið fullnægt, brugðu nemendurnir á leik á grænum flötum umhverfis háskólann. Þar var tekið í spil, sippað, spilaður fótbolti og farið í snú-snú svo fátt eitt sé nefnt. MYNDATEXTI Lækningar Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi landlæknir, fræddi nemana um leyndardóma læknisfræðinnar og mannslíkamans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar