Ensími spila Kafbátatónlist á NASA
Kaupa Í körfu
ÞAÐ gengu margir svekktir frá Nasa á fimmtudagskvöldið en óhætt er þó að fullyrða að það hafi einungis verið þeir sem ekki náðu miða á tónleika Ensími. Miðar kláruðust fyrr um daginn og aragrúi fólks er ætlaði að kaupa miða við dyrnar varð frá að hverfa. Ensími spilaði sig í gegnum alla Kafbátamúsík-plötuna við gífurlegan fögnuð aðdáenda sveitarinnar. Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, mætti á sviðið og lék í fjórum lögum. Sveitin var svo klöppuð tvisvar sinnum upp og þá renndi sveitin í lög af hinum tveimur plötum sínum auk þess að spila eitt nýtt lag, Wasteband, er fékk ljúfar viðtökur. Samkvæmt heimildum blaðsins er sveitin langt komin með nýja plötu og því allar líkur á því að Ensími sé snúin aftur til frambúðar. MYNDATEXTI Troðið Hver einasti fersentimetri var nýttur á Nasa á fimmtudaginn.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir