Tennis

Tennis

Kaupa Í körfu

ARNAR Sigurðsson úr TFK, tólffaldur Íslandsmeistari í tennis utanhúss, var meðal þeirra fjögurra sem í gær tryggðu sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins sem fram fer í Kópavogi þessa dagana. Hann lagði Stefán Pálsson, Víkingi, að velli með sannfærandi hætti í tveimur settum 6:0 og 6:0, og bendir flest til að hann landi sínum þrettánda titli á morgun. Arnar mætir Jóni Axel Jónssyni kl. 12 í dag þegar undanúrslit karla fara fram, en Jón Axel vann öruggan sigur á hinum fjórtán ára gamla Rafni Kumar Bonifcaius úr Víkingi. MYNDATEXTI Áfram Davíð Þór Halldórsson úr TFK komst í gær í undanúrslit í einliðaleik á Íslandsmótinu í tennis.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar