KR - Keflavík

KR - Keflavík

Kaupa Í körfu

KR hefur líklega sjaldan eða aldrei í sumar átt jafn góðan fyrri hálfleik og í gær þegar liðið lagði Keflavík að velli 4:1 í sjöundu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Sá hálfleikur dugði hins vegar bara til eins marks og Keflvíkingar náðu að jafna metin þegar tuttugu mínútur lifðu leiks. Það benti því allt til þess að Keflavíkurgrýla þeirra Vesturbæinga lifði góðu lífi en fyrir leikinn í gær hafði KR ekki unnið Keflavík í Bítlabænum síðan árið 2002. Sú var hins vegar kveðin í kútinn með öflugum lokakafla heimamanna og er hún önnur í röðinni í sumar því KR vann loksins sigur í Vestmannaeyjum fyrir skömmu. MYNDATEXTI Skallabarátta Jón Gunnar Eysteinsson úr Keflavík á hér í harðri baráttu við Grétar Sigfinn Sigurðarson og Gunnar Örn Jónsson á KR-vellinum í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar