Ísland - Makedónía

hag / Haraldur Guðjónsson

Ísland - Makedónía

Kaupa Í körfu

ÍSLENDINGAR unnu glæsilegan sigur á Makedóníumönnum, 34:26, í þéttskipaðri Laugardalshöllinni í gær og tryggðu sér með því sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins í handknattleik karla sem fer fram í Austurríki í janúar á næsta ári. Íslenska liðið fór á kostum í leiknum, sérstaklega í seinni hálfleiknum þegar það náði mest tólf marka forskoti, 30:18. Þjóðhátíðarstemmning var á meðal áhorfenda sem studdu við bakið á íslenska liðinu með ráðum og dáð og íslenski fáninn var alls ráðandi á áhorfendapöllunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar