Kjalarnes - Mótmæli

Kjalarnes - Mótmæli

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er byrjað að hanna girðinguna hjá samgöngusviði Reykjavíkurborgar. Hún verður sett upp mjög fljótlega en ég hef ekki fengið nákvæma tímasetningu, segir Marta Guðjónsdóttir, formaður hverfisráðs Kjalarness, um mannheldu girðinguna sem íbúarnar hafa krafist að sett verði upp við Vesturlandsveg á ákveðnum kafla vegarins. Þann 12. júní síðastliðinn efndu Kjalnesingar til mótmælastöðu við Vesturlandsveg til þess að leggja áherslu á kröfur sínar um bætt umferðaröryggi. Auk girðingarinnar, sem íbúarnir vilja fá strax, krefjast þeir hraðamyndavéla og undirganga undir Vesturlandsveg sem klýfur byggðina. MYNDATEXTI Mótmæli Íbúarnir fá innan tíðar langþráða girðingu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar