Rauði krossinn

Halldór Kolbeins

Rauði krossinn

Kaupa Í körfu

UM næstu helgi verður fólki boðið að kaupa kassa fyllta matvælum í Nóatúni í Mosfellsbæ. Kassarnir verða sendir til Delvina, sem er 5.000 manna bær í Albaníu, en deild Rauða krossins í Kjósarsýslu vinnur að því að koma á vináttutengslum við nýstofnaða deild þar. Nokkrir sjálfboðaliðar úr deildinni í Kjósarsýslu hafa komið sér upp bækistöðvum í bílskúr hjónanna Unnar Karlsdóttur og Úlfs Ragnarssonar í Mosfellsbæ og nýta lausar stundir til að pakka matvælum í kassa. MYNDATEXTI: ÖRN Ragnarsson með matvælakassa og starfandi fólk í baksýn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar