Hljómsveitin Hjálmar

Árni Torfason

Hljómsveitin Hjálmar

Kaupa Í körfu

Reggí-hljómsveitin Hjálmar er ein skemmtilegasta viðbótin í tónlistarflóru landsins. Þessi norræna hljómsveit lék fyrir stuttu á G! Festivali í Götu í Færeyjum við góðan orðstír og nú um daginn hitaði hún gesti Egilshallar upp fyrir rapphundinn og klámhvuttann Snoop Dogg. Þar sannaði hún að tónlist sveitarinnar höfðar jafnt til stuttpilsameyja og síðrassapeyja. Sveitin hefur verið dugleg við spilamennskuna en það ku vera nokkur fyrirhöfn að koma meðlimum hennar saman.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar