Umferðarteppa

Umferðarteppa

Kaupa Í körfu

MIKIL umferð var frá höfuðborgarsvæðinu í allan gærdag og fram á kvöld. Víðast á þjóðvegum var umferðin þung. Lítið var um óhöpp að sögn lögreglu. Einn bíll fór þó út af veginum á Heiðdalsvegi, á Skógarströnd, og var hann óökufær á eftir. Ferðamenn voru í bílnum sem var bílaleigubíll en meiddust ekki. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í kvöld í eitt útkall vegna bruna. Er á staðinn var komið reyndist hafa kviknað í grilli og var eigandinn búinn að slökkva eldinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar