Veggur við Hljómalindarreit málaður

Veggur við Hljómalindarreit málaður

Kaupa Í körfu

VINNA göfgar manninn segir máltækið og sem betur fer tókst að koma í veg fyrir, að æskulýðurinn yrði með öllu verkefnalaus í sumar. Þúsundir unglinga vinna við að fegra og snyrta umhverfið og þar á meðal þetta myndarlega fólk. Það hafði fengið það verkefni hjá Vinnuskólanum að hressa upp á vegginn við Hljómalindarreitinn og beitti við það öllum tiltækum tólum, jafnt penslum sem rúllum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar