Bootcamp fyrir börn.

Jakob Fannar Sigurðsson

Bootcamp fyrir börn.

Kaupa Í körfu

Þau hlaupa um salinn, halda dekkjum uppi um leið og þau gera hnébeygjur, þau stynja og dæsa og á sama tíma og svipur þeirra sýnir þreytu lýsir hann jafnframt ánægju og gleði. Þjálfari þeirra, Kristinn Freyr Guðmundsson, hvetur þau áfram en gætir þess þó að hver og einn ofgeri sér ekki. Þetta er hópur af krökkum sem eiga það sameiginlegt að vera í unglingavinnunni hálfan daginn og nota svo hinn helming dagsins í Herbúðum hjá Heilsuakademíunni í Egilshöll. Við settumst niður með tveimur þátttakendum Herbúðanna, þeim Evu Fejrø Kjartansdóttur, 12 ára og Þóreyju Ásgeirsdóttur, 13 ára, og þær sögðu okkur frá sinni reynslu af þessum miklu þjálfunarbúðum. MYNDATEXTI Herbúðir Þórey æfir taekwondo og Eva æfir karate, þær eru því vanar því að taka hraustlega á og þykir þeim það ekki leiðinlegt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar