Mótorhjólaferð í Landmannalaugar

Mótorhjólaferð í Landmannalaugar

Kaupa Í körfu

Hvað gera ferðamaður sem hefur gaman af því að hjóla og mótorhjólamaður sem hefur yndi af því að ferðast? Þeir taka saman höndum og setja á laggirnar ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í ferðamennsku á mótorhjólum. Það gerðu alltént bræðurnir Sverrir og Haukur Þorsteinssynir hjá Blue Mountain Adventure Tours, nýlegu fyrirtæki sem hefur sérstöðu í ferðaþjónustu á Íslandi. Grunnurinn í starfi ferðaskrifstofunnar er að skipuleggja mótorhjólaferðir um landið og þegar hún efndi til hópferðar í Landmannalaugar á dögunum þurfti ekki að segja Árna Sæberg, ljósmyndara Morgunblaðsins, það tvisvar. Hann skellti sér með. MYNDATEXTI Hressing Konurnar í hópnum fá sér hressingu. Theodóra Björk Heimisdóttir, Ásdís Olga Sigurðardóttir og Aníta Hauksdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar