Þróttur - Fylkir

Þróttur - Fylkir

Kaupa Í körfu

LEIKUR Þróttar og Fylkis minnti á tíðum frekar á stríð en fótboltaleik þegar liðin mættust á Valbjarnarvelli í gær í níundu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Liðin eru bæði þekkt fyrir mikla baráttu, enda stýrt af þekktum baráttujöxlum, og þau stóðu vel undir nafni í gær í leik sem lyktaði með sigri Fylkis, 2:1. MYNDATEXTI Einbeittir Ásgeir Börkur Ásgeirsson úr Fylki og Þróttarinn Ingvi Sveinsson berjast hér um boltann en baráttan var einmitt mikil á Valbjarnarvelli í gær. Ásgeir Börkur og félagar höfðu þó betur að lokum og tóku þrjú stig heim.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar