Stoppað fyrir börnum á gömlum Chrysler

Stoppað fyrir börnum á gömlum Chrysler

Kaupa Í körfu

ÞAÐ mætti segja að bílstjóri gamals Chrysler-eðalvagns af árgerð 1947 hefði verið staddur á tímamótum í orðsins fyllstu merkingu í Lækjargötunni í gær. Hann var staddur í ökutæki fortíðarinnar og stansaði fyrir börnunum, framtíðinni, sem gengu í halarófu í átt til Tjarnarinnar í Reykjavík. Í baksýnisspeglinum birtust honum þá leifar samtímans en ekki er vitað hver áfangastaður hans var.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar