KR - Stjarnan

KR - Stjarnan

Kaupa Í körfu

STJARNAN úr Garðabæ skellti sér upp að hlið Vals og Breiðabliks á toppi Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Stjarnan heimsótti KR í Frostaskjólið og sigraði örugglega 4:1 eftir að hafa verið 2:1 yfir í hálfleik. Valur og Breiðablik gerðu jafntefli í gærkvöldi og Garðbæingar nýttu tækifærið vel. Sögulegur sigur því Stjarnan hefur ekki sigrað KR í Vesturbænum í níu ár. MYNDATEXTI Ákveðni Björk Gunnarsdóttir framherji Stjörnunnar er ákveðin á svip í baráttunni við Írisi Dögg Gunnarsdóttur markvörð KR í leiknum á KR-vellinum í gærkvöldi þar sem Stjarnan hafði betur 4:1.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar