Eiður Smári á æfingu hjá Þór

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Eiður Smári á æfingu hjá Þór

Kaupa Í körfu

Pabbi , við sáum einn ótrúlega líkan Eiði Smári á æfingu hjá Þór, sagði dóttir mín þegar hún kom heim undir kvöldmat í gær. Forvitinn að eðlisfari kíkti ég niður á völl, enda ekki langt að fara. Og viti menn, þarna var Eiður og stóð sig bara nokkuð vel, sýndist mér! Elsti sonur Eiðs leikur með HK á N1-móti KA-manna sem hófst í gær og stendur þar til á laugardag. Þess vegna er Barcelona-hetjan í nokkra daga hér í höfuðstaðnum og fær að æfa með Þór, enda eru þeir gamlir félagar úr landsliðinu, hann og þjálfarinn, Lárus Orri Sigurðsson. MYNDATEXTI Hetja Nokkrir ungir Þórsarar, nýbúnir að keppa, báðu Eið Smára um eiginhandaráritun eftir æfinguna og hann varð við beiðninni með bros á vör.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar