Haukar - HK

Haukar - HK

Kaupa Í körfu

Leikurinn á Ásvöllum var í járnum lengst af en Haukar náðu undirtökunum þegar 20 mínútur voru til leiksloka. Þá skoraði Garðar Ingvar Geirsson tvö góð mörk með tveggja mínútna millibili og staðan var skyndilega orðin 2:0 fyrir Hauka. HK-ingar sóttu mjög á lokakaflanum, Calum Þór Bett minnkaði muninn eftir sendingu frá hinum 17 ára gamla Zlatko Krickic þegar 10 mínútur voru eftir. Undir lokin varði Amir Mehica í marki Haukanna vel í tvígang og kom í veg fyrir að Kópavogsliðið jafnaði metin. MYNDATEXTI Efstir Haukamennirnir Ásgeir Þór Ingólfsson og Garðar Ingvar Geirsson fagna eftir annað markanna gegn HK í gærkvöld. Garðar skoraði bæði mörk Haukanna sem tróna á toppi 1. deildarinnar eftir sigurinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar