Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi

Kaupa Í körfu

SUNDFÉLAGIÐ Ægir náði að hnekkja fimm ára veldi Íþróttabandalags Reykjanesbæjar og sigraði í stigakeppni aldursflokkameistaramóts Íslands í sundi fyrir 12-18 ára ungmenni sem haldið var á Akureyri um síðustu helgi. Ægir vann þennan titil síðast fyrir þrettán árum, 1996, og hreppti hann eftir gífurlega spennandi keppni við ÍRB en aðeins munaði 53,5 stigum á liðunum tveimur þegar upp var staðið. MYNDATEXTI Sigraði Bryndís Rún Hansen úr Óðni á Akureyri tryggir sér sigur í fjórsundi á aldursflokkamótinu. Hún verður einn af keppendum Íslands á Evrópumeistaramóti unglinga sem fram fer í Prag í næstu viku.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar