Inga Jessen

Inga Jessen

Kaupa Í körfu

ÉG er búin að vera að vinna að þessari síðu síðan í apríl og það hefur verið alveg ótrúlega gaman. Mig langar líka með þessu að segja við þá sem eru atvinnulausir að það er allt hægt og það má ekki gefast upp, segir Inga Jessen, viðskiptafræðingur. Inga missti vinnuna í október og leiddist það fljótt að sitja auðum höndum. Í leit hennar að ódýrri dægradvöl kviknaði svo hugmyndin að því að safna saman á einn stað upplýsingum um allt það sem er ókeypis í Reykjavík. Í dag hefur afraksturinn litið dagsins ljós á vefsíðunni www.freecitytravel.com. MYNDATEXTI Framtakssöm Inga fór á stúfana með myndavél og segist hissa á hversu margt sé að finna ókeypis í Reykjavík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar