Heimilislaus kona við Ánanaust

Heimilislaus kona við Ánanaust

Kaupa Í körfu

Á AUÐRI lóð við Ánanaust stendur lítið kúlutjald og garðstólar faldir milli illgresis og ætihvannar. Við fyrstu sýn mætti halda að þar hefði sérkennilegur staður verið valinn fyrir söluútstillingu en við nánari skoðun gefa tómar matarumbúðir og föt á snúru annað til kynna. Raunin er sú að í þessu tjaldi hefur kona á miðjum aldri komið sér fyrir og búið undanfarnar 5 vikur við heldur þröngan kost. MYNDATEXTI Heimili? Í óræktinni stendur tjaldið og skammt frá búslóðin undir plastdúk.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar