Skapandi ÍTR hópur

Skapandi ÍTR hópur

Kaupa Í körfu

VART er hægt að deila um að mikið hefur farið fyrir neikvæðum fréttum í miðlum landsins undanfarna mánuði. Til að bregðast við þessu hafa krakkar frá frístundamiðstöðinni Kampi ákveðið að halda sýningu á jákvæðum fréttum í glerskálanum í Háteigsskóla milli kl. 12 og 13 í dag og milli kl. 16 og 19 á fimmtudag. Á sýningunni má finna yfir 100 úrklippur af fréttum, góðum tilboðum, líflegum auglýsingum og skemmtilegum myndum sem krakkarnir hafa klippt úr dagblöðum og tímaritum síðan 15. júní. Að auki söfnuðu krakkarnir, sem eru á aldrinum 15-16 ára, jákvæðum sögum úr eigin lífi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar