FH - Fylkir

FH - Fylkir

Kaupa Í körfu

ÍSLANDSMEISTARAR FH-inga héldu sigurgöngu sinni áfram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Í miklum baráttuleik náðu þeir að leggja Fylkismenn að velli í Kaplakrika, 3:2, og unnu þar með sinn 11. sigur í röð í deildinni. Forysta Hafnarfjarðarliðsins í toppsætinu er nú 12 stig og ekki að sjá að bikarinn hverfi úr bikaraskápi FH-inga í Krikanum í haust. MYNDATEXTI Fjör Pape Mamadou Faye, sóknarmaðurinn ungi hjá Fylki, og Tommy Nielsen, varnarmaðurinn reyndi hjá FH, kljást í leik liðanna í Kaplakrikanum í gærkvöld. FH-ingar lentu undir gegn Árbæjarliðinu, 1:2, en náðu að knýja fram sigur með marki á ögurstundu og unnu 11. leikinn í röð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar