Víkingur - KA

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Víkingur - KA

Kaupa Í körfu

Víkingur úr Reykjavík varð í gærkvöld fyrsta liðið til að leggja KA að velli í 1. deild karla í knattspyrnu þetta sumarið. Christoper Vorenkamp gerði eina mark leiksins eftir hornspyrnu í fyrri hálfleik. Sigurinn hékk á bláþræði í seinni hálfleiknum en var ansi kærkominn fyrir Víkinga sem unnu síðast í 5. umferð og hafa ekki staðið undir væntingum í sumar en eru nú í sjöunda sæti, ellefu stigum frá toppliði Selfoss. KA missti Fjarðabyggð upp fyrir sig og er í fjórða sæti, fimm stigum fyrir ofan Víking R. MYNDATEXTI Sigurmark Víkingar höfðu góða ástæðu til að fagna í gær kærkomnum sigri á KA en hér fagna þeir sigurmarkinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar