Margrét Hannesdóttir 105 ára

Margrét Hannesdóttir 105 ára

Kaupa Í körfu

ÞAÐ koma bara allir sem vilja, segir Margrét Hannesdóttir sem heldur upp á afmælið sitt á morgun á Grand Hóteli í Reykjavík. Hún ætlar því ekkert að baka í þetta skiptið, enda miklu auðveldara að kaupa veitingarnar. Margrét er meðal elstu núlifandi Íslendinga, en hún varð 105 ára á miðvikudaginn. Það er þó varla að sjá á henni eða heyra, því hún ber aldurinn sérlega vel. Margrét er af mikilli langlífisætt, en hún og Filippus bróðir hennar munu samanlagt ná 205 ára aldri að loknu afmæli hans í desember. Margrét á að auki þrjú yngri systkini og 56 afkomendur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar