KR - Larissa

KR - Larissa

Kaupa Í körfu

KR-INGAR voru hreint úr sagt frábærir í leik sinum við gríska liðið Larissa á KR-velli við Frostaskjól í gær. Leikur þeirra var skipulagður og agaður frá fyrstu mínútu. Þeir létu léttleikandi Grikkina aldrei teyma sig út úr stöðum heldur héldu þeir ró sinni og létu þá svo sannarlega hafa fyrir hlutunum. Þegar frá leið uppskáru KR-ingar laun erfiðis síns, fyrst með marki Baldurs Sigurðssonar á 56. mínútu og síðan þegar Björgólfur Takefusa smellti jarðarberinu ofan á tertuna á síðustu mínútu. MYNDATEXTI Góður Guðmundur Benediktsson var vörn Grikkjanna erfiður í gærkvöld og hér geysist hann framhjá þeim Romeu og Dimitrios Balis.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar