Ljósmyndanámskeið hjá Krissý

Heiðar Kristjánsson

Ljósmyndanámskeið hjá Krissý

Kaupa Í körfu

Á ljósmyndanámskeiði hjá Krissý ljósmyndara var mikið líf og fjör þegar okkur bar að garði. Þennan dag áttu þau að æfa sig að taka myndir inni í stúdíói og mátti vart sjá hvort krökkunum þótti skemmtilegra að vera fyrir aftan eða framan myndavélina. Þau voru því öllu vön þegar ljósmyndari Morgunblaðsins bað þau um að sitja fyrir og reynslumikil og ófeimin stilltu þau sér upp þegar hann smellti af. Við fengum svo tvær stúlkur lánaðar, þær Fríðu Rún Frostadóttur, 10 ára og Heru Katrínu Aradóttur, 12 ára, og þær sögðu okkur frá því sem þær eru búnar að læra. MYNDATEXTI Arkítektinn og kvikmyndagerðarkonan Þær stöllur, Hera og Fríða, voru sammála um að það væri mjög skemmtilegt á ljósmyndanámskeiðinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar