Eldsvoði á Akureyri

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Eldsvoði á Akureyri

Kaupa Í körfu

ÍBÚÐ í rúmlega aldar gömlu, fjögurra íbúða timburhúsi við Aðalstræti 13 á Akureyri er talin ónýt eftir bruna síðdegis í gær. Fólki varð ekki meint af; enginn var heima í norðurenda hússins, þar sem eldurinn kom upp, og fólk í næstu íbúð, par með lítið barn, komst út án vandræða. MYNDATEXTI Hætta Vel á annan tug slökkviliðsmanna var á vettvangi í gær enda mikill eldsmatur í gömlu timburhúsinu og kapp lagt á að hann dreifði sér ekki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar