Miðbæjarstemning á mánudegi

Miðbæjarstemning á mánudegi

Kaupa Í körfu

ÞESSA ungu stúlku langaði að taka til hendinni í blíðunni í gær og hreinsa beðin á Austurvelli með lítið eitt eldri krökkum í Vinnuskóla Reykjavíkur. Stalst hún því í vinnutólin og undi sér vel í beðinu. Vera kann að henni snúist hugur og hún skipti um starfsvettvang þegar líður að helginni en fari sem horfir mun rjómablíðan ekki endast vikuna. Spáð er rigningu og skúrum víða um land frá föstudegi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar