Puttalingar

Puttalingar

Kaupa Í körfu

KANNSKI hafa þær tileinkað sér hið íslenska mottó þetta reddast frönsku stelpurnar sem reyndu að húkka far frá Öskjuhlíðinni í Reykjavík til Leifsstöðvar í Keflavík síðdegis í gær. Allavega virtust þær ekkert stressaðar þótt vélin þeirra ætti að fara í loftið eftir aðeins þrjá klukkutíma, heldur treystu því að miskunnsemi íslenskra ökumanna kæmi þeim tímanlega á leiðarenda. Svo getur líka verið að innst inni hafi þær í raun viljað missa af fluginu heim til að freista þess að njóta íslenska sumarsins og björtu nóttanna örlítið lengur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar