Fram - Sigma Olomouc - Evrópukeppnin

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Fram - Sigma Olomouc - Evrópukeppnin

Kaupa Í körfu

Leikmenn Fram og þjálfari geta svo sannarlega borið höfuðið hátt þrátt fyrir tap í leiknum í gær. Liðið stóð sig heilt yfir vel og náði örugglega lengra en margir töldu þegar lagt var af stað í forkeppninni. En eftir góð úrslit, 1:1, í fyrri leiknum við Sigma fyrir viku gerðu menn sér vonir um að ná að stiga skrefinu lengra og fá meira út úr heimaleiknum í gær en raun varð á. Vonbrigðin mátti glöggt merkja á leikmönnum Fram og þjálfara liðsins, Þorvaldi Örlygssyni, í leikslok í gær. Möguleikinn var fyrir hendi en það er bara ekki á hverjum degi sem menn geta nýtt þá möguleika sem gefast í lífinu. MYNDATEXTI Gæsla Varnarmaður Sigma Olomouc fylgir Hjálmari Þórarinssyni, sóknarmanni Framara, eins og skugginn

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar