KR - Larissa - Evrópukeppnin

KR - Larissa - Evrópukeppnin

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er vissulega mikil eftirsjá í Jónasi Guðna Sævarssyni en það voru allir staðráðnir í að gera þennan kveðjuleik ógleymanlegan fyrir hann. Það er síðan fyrst og fremst ánægjulegt fyrir Jónas og hans fjölskyldu að hann skuli fá tækifæri sem atvinnumaður, og þar uppsker hann eins og hann hefur til sáð, sagði Logi Ólafsson, þjálfari KR, við Morgunblaðið í gærkvöld. Jónas Guðni, fyrirliði KR-inga, kveður hópinn í dag og fer til Halmstad í Svíþjóð þar sem hann hefur gert samning til hálfs fjórða árs. MYNDATEXTI Kveðjuleikur Jónas Guðni Sævarsson lék sinn síðasta leik með KR í gær og heldur nú til Svíþjóðar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar