Sólbað í Elliðaárdalnum

Sólbað í Elliðaárdalnum

Kaupa Í körfu

EKKI er amalegt að geta brugðið sér í lautarferð í miðri höfuðborginni eins og Elliðaárdalurinn býður upp á. Þessar stúlkur nýttu sér góða veðrið til hins ýtrasta á þeim slóðunum nýlega og létu fáklæddar fara vel um sig á grasinu. Ekki var feimninni fyrir að fara þó að ljósmyndari Morgunblaðsins væri á ferðinni og smellti af þeim mynd, heldur veifuðu stúlkurnar og brostu sínu blíðasta til hans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar