Breiðablik - ÍBV

Breiðablik - ÍBV

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er leikið þétt í úrvalsdeild karla í fótboltanum þessa dagana. Þrettándu umferð lauk í fyrradag og fjórtánda umferðin verður leikin annað kvöld og á mánudagskvöldið. Síðan taka við átta liða úrslitin í bikarkeppninni á fimmtudaginn kemur en einum leikjanna þar, milli Vals og KR, hefur reyndar verið frestað fram á verslunarmannahelgi vegna Evrópuleiks KR-inga gegn Basel á fimmtudaginn. MYNDATEXTI Mörk Eyjamenn tóku sig til og skoruðu fjögur mörk gegn Breiðabliki eftir hálfgerða markaþurrð í sumar. Hér skallar Yngvi Magnús Borgþórsson að marki Blika og Ingvar Þór Kale markvörður stekkur upp með honum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar