KR - Larissa

KR - Larissa

Kaupa Í körfu

KR-ingar náðu einum af betri úr-slitum íslensku fót-bolta- sögunnar á fimmtu-dag þegar þeir slógu gríska liðið Larissa út úr Evrópu-deild UEFA. Liðin skildu jöfn, 1:1, í Grikk-landi og þar með eru KR-ingar komnir í 3. umferð keppninnar með saman-lögðum sigri, 3:1. KR-ingar lentu í þeirri stöðu sem þeir óttuðust mest því staðan var orðin 1:0 fyrir Larissa eftir hálf-tíma leik. En skipu-lagður leikur KR-inga kom í veg fyrir það og þegar upp var staðið náðu leik-menn Larissa aðeins tveimur skotum á mark Vestur-bæjarliðsins allan leikinn. Grétar Sig-finnur Sigurðar-son jafnaði metin fyrir KR þegar korter var til leiksloka. KR-ingar mæta Basel frá Sviss og eiga heima-leikinn næsta fimmtu-dag, 30. júlí, en liðin mætast síðan í Basel viku síðar, hinn 6. ágúst.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar