Vopnafjarðarhöfn

Helgi Bjarnason

Vopnafjarðarhöfn

Kaupa Í körfu

FISKIMJÖL og lýsi verður framleitt með raforku í nýrri verksmiðju HB Granda á Vopnafirði. Mikil vinna er á Vopnafirði í kringum byggingu fiskimjölsverksmiðjunnar. Frá því Tangi á Vopnafirði sameinaðist HB Granda fyrir tæpum fimm árum hefur uppsjávarmiðstöð fyrirtækisins verið byggð upp á Vopnafirði í áföngum. Þar er nú góð og afkastamikil aðstaða til manneldisvinnslu á loðnu og síld og öflugt frystihús og stór frystigeymsla. Síðasti áfanginn er bygging nýrrar fiskimjölsverksmiðju. MYNDATEXTI Stjóri Sveinbjörn Sigurðsson er verksmiðjustjóri hjá HB Granda.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar