Þróttur - KR

Þróttur - KR

Kaupa Í körfu

Leikur liðanna í gær bar þess augljós merki að um væri að ræða lið í hvor sínumum helmingi deildarinnar. KR-ingar réðu för frá fyrstu mínútu og sýndu á köflum glæsilegan samleik. Þróttara skorti alla baráttu í sínum leik, sér í lagi eftir annað mark KR, sem virtist slá heimamenn algerlega út af laginu. Rétt áður höfðu heimamenn þegið ölmusu frá gestunum, sem gáfu þeim annað markið með klaufalegum hætti, en Þróttarar hefðu þurft meira en ölmusu til að halda í við KR-liðið, sem virtist óvenju frískt og sprækt þrátt fyrir erfiðan útileik í Grikklandi á dögunum. MYNDATEXTI Mark Grétar Sigfinnur Sigurðarson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir KR í 5:1-sigri liðsins gegn Þrótti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar