Selfoss - Víkingur R

Selfoss - Víkingur R

Kaupa Í körfu

Fjölmargir áhorfendur voru mættir í Víkina í gær, og fjölmenntu Selfyssingar á leikinn. Þeir ærðust af fögnuði þegar Jón Guðbrandsson skallaði knöttinn í netið á 55. mínútu og kom gestunum yfir, en fram að því höfðu Selfyssingar átt meira í leiknum, sem þó var ekkert augnayndi og einkenndist af baráttu og fáum færum. Heimamenn færðust þó í aukana eftir markið, og uppskáru jöfnunarmark á 80. mínútu, þegar Daníel Hjaltason stangaði boltann í netið eftir góða sendingu frá Kjartani Baldurssyni. MYNDATEXTI Hetja Agnar Bragi Magnússon tryggði Selfyssingum 2:1 sigur í Víkinni í gær og hann fagnaði markinu með því að fara úr að ofan. Það er víst bannað en Agnari Braga var slétt sama þegar hann fékk gult spjald frá dómaranum í kjölfarið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar