KR - Stjarnan

KR - Stjarnan

Kaupa Í körfu

Fyrir leikinn var Afturelding/Fjölnir með 14 stig í 6. sæti deildarinnar en KR-konur voru með 13 stig í 7. sæti. Lilja Dögg Valþórsdóttir kom KR á bragðið strax á 9. mínútu. Sonja Björk Jóhannsdóttir bætti öðru marki við fyrir Vesturbæinga á 35. mínútu og staðan því vænleg hjá KR-konum í hálfleik. Gjarnan er talað um að þriðja markið skipti sköpum í knattspyrnuleikjum og það voru KR-ingar sem skoruðu þriðja og síðasta mark leiksins. Vörn gestanna hafði hætt sér full framarlega á völlinn og Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir slapp inn fyrir vörnina og setti boltann efst upp í nærhornið á 87. mínútu. MYNDATEXTI Mark Sonja Björk Jóhannsdóttir skorar annað mark KR.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar