FH - Aktobe frá Kasakstan

FH - Aktobe frá Kasakstan

Kaupa Í körfu

FH-INGAR hafa verið hreint út sagt frábærir í Pepsi-deildinni í sumar og bættu við sínum tólfta sigri í sumar í 14. umferðinni. Einn er þó sá leikmaður sem þótt hefur skara fram úr að mati Morgunblaðsins en það er hinn sókndjarfi kantmaður Atli Guðnason. Hann hefur reyndar aðeins gert fjögur mörk í sumar en þeim mun fleiri hefur hann lagt upp fyrir leikmenn á borð við Atla Viðar Björnsson og Matthías Vilhjálmsson sem eru á meðal markahæstu manna. MYNDATEXTI Góður Atli Guðnason, framherji FH, er í fimmta sinn í liði umferðarinnar hjá Morgunblaðinu. Atli er efstur í M-gjöfinni með 14 M í 14 leikjum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar