Hótel 101

Hótel 101

Kaupa Í körfu

SKILANEFND Landsbankans er með sjö milljóna dollara veð, sem jafngildir 910 milljónum króna, í Hverfisgötu 8-10 þar sem 101 Hótelið er til húsa. Um er að ræða tryggingabréf, sem gefið var út af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ingibjörgu Pálmadóttur eiginkonu hans hinn 30. júní og þinglýst hinn 23. júlí síðastliðinn. Bréfið er á öðrum veðrétti á fasteigninni, en fyrir hvílir 350 milljóna króna veð á hótelinu vegna láns frá Kaupþingi. Hótelið er því veðsett fyrir alls 1.260 milljónir króna. MYNDATEXTI Sögufrægt Hverfisgata 8-10 þar sem 101 Hótelið er til húsa er sögufrægt hús sem byggt var í sjálfboðavinnu árið 1935. Húsið er nú yfirveðsett.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar