Golfnámskeið á Korpúlfsstöðum

Heiðar Kristjánsson

Golfnámskeið á Korpúlfsstöðum

Kaupa Í körfu

Pro Golf og Golfklúbbur Reykjavíkur hafa í sumar boðið upp á golfnámskeið fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára á Korpúlfsstaðavelli. Þar læra krakkarnir helstu grunntækni golfíþróttarinnar í gegnum hina ýmsu leiki. Barnablaðið skellti sér á námskeið og fékk að fylgjast með ungum afrekskylfingum kenna enn yngri framtíðarkylfingum. Þegar hópurinn fékk svo nestispásu fengum við tvo þátttakendur lánaða, þau Brján og Ingibjörgu, og ræddum við þau um golfíþróttina og námskeiðið. MYNDATEXTI Sveifla Brjánn fylgist með glæsilegri sveiflunni hennar Ingibjargar. Nýja, bleika golfsettið reynist Ingibjörgu vel.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar