Leiknir R. - KA

Leiknir R. - KA

Kaupa Í körfu

KA GERÐI góða ferð austur á Eskifjörð í gærkvöld og vann 3:0 sigur á Fjarðabyggð sem dugði liðinu til að komast upp að hlið Austfirðinga í 4.-5. sæti fyrstu deildar karla í knattspyrnu. Eftir góða byrjun á sumrinu, þar sem liðið tapaði ekki leik fyrr en gegn Víkingi R. í 10. umferð þann 10. júlí, hafði KA fyrir leikinn í gær tapað fjórum af síðustu fimm deildarleikjum sínum. Með sigrinum á spútnikliði deildarinnar í gær geta þeir gulklæddu hins vegar enn gælt við að komast upp í úrvalsdeildina en liðin eru bæði þremur stigum á eftir HK sem er í 2. sæti. Fjarðabyggð virðist hins vegar vera að missa móðinn eftir þrjú töp og eitt jafntefli í fjórum síðustu leikjum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar