Afturelding - ÍA

Afturelding - ÍA

Kaupa Í körfu

AFTURELDING og ÍA skildu jöfn 1:1 í 15. umferð 1. deildar karla í fótbolta í gær í leik þar sem að spennustigið var hátt en lítið um tilþrif. Afturelding er í næst neðsta sæti deildarinnar með 14 stig en Skagamenn koma þar næstir með 17 stig í þriðja neðsta sæti. Á botninum situr Víkingur í Ólafsvík með 7 stig. Á Akureyri tryggði varamaðurinn Kristján Steinn Magnússon Þórsurum 1:0 sigur gegn Víkingi úr Reykjavík. MYNDATEXTI Stál í stál Hvorugu liðinu tókst að vinna sigur þegar Helgi Pétur Magnússon og félagar úr ÍA og Albert Ásvaldsson og félagar úr Aftureldingu áttust við í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar