Gay Pride 2009

Heiðar Kristjánsson

Gay Pride 2009

Kaupa Í körfu

Gleðiganga samkynhneigðra fór fram með pomp og prakt síðastliðinn laugardag að vanda. Áætlað var að um 80.000 hefðu lagt leið sína niður í miðbæ af tilefninu en gangan hefur notið gríðarlegra vinsælda hér á landi og þátttaka í raun með ólíkindum, sé farið í gömlu góðu höfðatöluna. Á alþjóðavettvangi hafa menn tekið eftir þessu opna og mannúðlega viðhorfi hins almenna Íslendings og með sönnu má segja að gleðigangan hafi ríka almenna skírskotun, er í raun réttri almenn mannréttindahátíð. MYNDATEXTI Útlönd Erlendir gestir létu sig ekki vanta. Ranna Bieschke, Sheri Simmens, Alison Shiboski og Dorothy Dilliplane klikkuðu ekki á skreytingunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar